Gamalt
Í LÍFSINS ÓLGUSJÓ  

ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN...


Home Archives Contact

miðvikudagur, júní 15, 2005 :::
 
Hæ,
Ég brá mér augnablik frá skrifborðinu mínu um daginn. Þegar ég kom til baka hringdi síminn mjög ákaft. Það var lagt á í sömu andrá og ég tók svaraði, svo ég missti af símtalinu. Ég hringdi heim, ekki hafði verið hringt þaðan. Ég hringdi í alla fjölskylduna, enginn hafði hringt í mig. Engin vinkvenna minna hafði hringt í mig. Ég hringdi í happdrættið og lottóið. Þeir höfðu ekki hringt til að tilkynna mér um stóra vinninginn. Ráðgáta! En þegar ég las Fréttablaðið um helgina, vissi ég hver hafði hringt í mig. Þetta hefur verið símtal frá utanríkisráðuneytinu með tilboð um að gera mig að ambassador eða ambassadoríu í einhverjum litríku og spennandi landi.
Kveðja,
Bekka

::: posted by Bergthora at 4:24 e.h.




Powered by Blogger