Gamalt
Í LÍFSINS ÓLGUSJÓ  

ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN...


Home Archives Contact

fimmtudagur, október 11, 2007 :::
 
Hæ,
Borgarstjórinn sá aldrei listana frægu. Sennilega hefur kollan dottið niður fyrir augu á honum, svo hann hefur misst af því þegar listinn var lagður fyrir hann. Líklega hefði bara verið betra fyrir hann að vera sköllóttur og kollulaus og sjá skýrt og greinilega það sem sett var fyrir framan hann.
En nú er hann víst ekki lengur borgarstjóri, er að missa keðjuna í þessum skrifuðum orðum. Það er alveg sama hvað maður kýs - maður situr alltaf uppi með íhaldið eða framsókn. Hvernig er eiginlega með þetta framsóknarfrík í borgarstjórn? Þetta hefur ekki nokkurt fylgi á bak við sig, er með allt niður um sig hjá Orkuveitunni, allir í hans eigin flokki eru brjálaðir út í hann, enginn af hans samflokksmönnum styður hann, ég hef ekki hitt nokkurn mann sem er hrifinn af honum eða veitir honum stuðning, en samt syndir þetta kvikindi endalaust hundasund og er alltaf í oddastöðu - bæði fyrir sig og sína.
Eina huggunin er að verðandi borgarstjóri lítur bara ljómandi vel út, er vel menntaður og kemur ágætlega fyrir.
Kveðja,
Bekka

::: posted by Bergthora at 5:54 e.h.




Powered by Blogger