Gamalt
Í LÍFSINS ÓLGUSJÓ  

ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN...


Home Archives Contact

sunnudagur, júlí 22, 2007 :::
 
Hæ,
Þá er síðasta bókin um galdrastrákinn Harry Potter komin út á frummálinu. Ég ætla að bíða eftir íslensku þýðingunni, vegna þess að ég þarf að lesa hana alla upphátt fyrir einn af afkomendum mínum, eins og ég hef gert samviskusamlega síðan útgáfan hófst. Það yrði ekki hálft gaman að vita hvað gerist þegar lesturinn hefst þann 15. nóvember nk. Þess vegna er líklega best að ganga með eyrnatappa þangað til, svo að maður komist hjá því að heyra hver endirinn varð á ævintýrinu um Harry Potter.
Kveðja,
Bekka

::: posted by Bergthora at 11:00 e.h.




Powered by Blogger