Gamalt
Í LÍFSINS ÓLGUSJÓ  

ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN...


Home Archives Contact

þriðjudagur, desember 27, 2005 :::
 
Hæ,
Einn nágranni minn setti borvél í gang klukkan korter í sex á aðfangadag, svo ekki fór fram hjá neinum í húsinu að þar var jólaundirbúningur skammarlega seint á ferðinni.
Um ellefu-leytið á aðfangadagskvöld var skotið upp nokkrum flugeldum við hús gegnt okkur. Mér finnst afar smekklegt og viðeigandi að minnast fæðingarhátíðar frelsarans með látlausri flugeldasýningu.
Kveðja,
Bekka

::: posted by Bergthora at 1:41 e.h.




Powered by Blogger