Gamalt
Í LÍFSINS ÓLGUSJÓ  

ÞAÐ GEFUR Á BÁTINN...


Home Archives Contact

þriðjudagur, júlí 03, 2007 :::
 
Hæ,
ég heyrði í fréttum á einhverri stöðinni í gær að verið var að tala við unga stúlku, sem hafði verið á heimleið frá Glasgow-flugvelli, þar sem gerð var sprengjuárás og hafði sú gerð skotið mörgum viðstöddum skelk í bringu. Þessi unga stúlka var hvergi bangin og sagði að hefði "bara verið góður fílingur á flugvellinum."
Fólk er greinilega hætt að kippa sér upp við smámuni eins og nokkur kíló af sprengjuefni við bæjardyrnar.
Kveðja,
Bekka

::: posted by Bergthora at 12:03 f.h.




Powered by Blogger